Færsluflokkur: Bloggar
6.5.2007 | 18:30
Frábært...
og velheppnað Hanastélsboð í gær um 80 manns mættu. Glæsilegur salurinn og geggjuð stemming. Ungir Framsóknarmenn kunna sko að skemmta sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.5.2007 | 12:41
Hanastélsboð og karnival
Við Framsóknarmenn í Suðurkjördæmi verðum með Karnival stemmingu á Hafnargötunni í Keflavík í dag frá 15-17 Túðar, andlitsmálun, Harasystur og Óli og Siddi verða til skemmtunnar svo eitthvað sé nefnt.
í kvöld kl 21 verða svo ungir framsóknarmenn með Hanastélsboð í framsóknarhúsinu, Hafnargötu 62, Reykjanesbæ. Hvet alla 23-35 ára að koma og skemmta sér með okkur.
Komið og eigið góðan dag með okkur í Reykjanesbæ í dag
Á morgun verður svo Karnivalstemming á Selfossi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2007 | 10:58
Valkyrjumót í Reykjanesbæ í kvöld
Fékk þetta að láni frá Helgu Sigrúnu
Vek hér með athygli á valkyrjumóti sem við Framsóknarkonur stöndum fyrir annað kvöld, fimmtudaginn 3. maí. Ætlum að hittast í Oddfellow húsinu, Grófinni 6 kl. 20:30 og gera okkur glaðan dag/kvöld. Óperuídýfurnar Davíð Ólafs og Stefán Íslandi troða upp. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við HÍ og frambjóðandi okkar í Reykjavík flytur erindi um heppni og kraftaverk og Bjarni Harðar flytur minni kvenna. Ef ég þekki þá félaga Davíð og Stefán rétt verður um stórkostlega skemmtun þar að ræða, Árelía Eydís mun örugglega kenna konum að grafa gull upp úr bakgarðinum hjá sér og Bjarni Harðar er engum líkur þegar hann tekur sig til og því ómögulegt að segja til um hvar minni kvenna endar þetta kvöldið.
Við bjóðum að sjálfsögðu upp á nettar veitingar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 11:13
Flottur dagur ....
Átti mjög svo góðan dag i gær, með meðframbjóðendum mínum,Helgu Sigrúnu og Guðna Ágústssyni hér í Garðinum. Byrjuðum daginn á að fara og heimsækja bæjarskrifstofuna, þar sem Framsóknarkaffi var á boðstólnum. Síðan lá leið okkar í Gerðaskóla, þar sem Guðna Ágústssyni var tekið eins og poppstjörnu. Guðni var spurður að því hvort hann hefði ekki verið í áramótaskaupinu, sem hann jánkaði. Börnin tóku myndir af Guðna því þarna var merkilegur maður á ferð. Verst að þau skuli ekki vera með kosningarétt. Guðni var mjög ánægður með börnin í Garðinum, hvað þau væru svakalega vel uppalin og kurteis. Sem Garðmanni hlýnaði manni um hjartarætur við þessi ummæli Guðna. Fjörugar og skemmtilegar umræður áttu sér svo stað á kaffistofu kennara í hádeiginu. Eftir fundinn fengum við gómsætan fisk á flösinni ala Matta.
Við Helga Sigrún áttum svo góðan fund um kvöldið á Flösinni, þar sem fjörugar umræður stóðu langt fram á kvöld. Er ekki frá því að við höfum nælt í nokkur íhalds atkvæði í gær.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 15:37
Gott að eitthvað gengur vel......
Mínir menn tóku Everton í smá kennslustund í morgun
Glory glory man united
Man.Utd. með fimm stiga forskot eftir ótrúlegan sigur á Everton | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.4.2007 | 10:33
Íslendingar fyrstir og bestir
Þær fréttir bárust í vikunni frá Kína að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið koparvíra. Kínversk stjórnvöld segja að þetta sýni svo að ekki verði um villst að Kínverjar hafi verið búnir að finna upp símann fyrir 1.000 árum.
Daginn eftir bárust þær fréttir frá Þýskalandi að fronleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m niður í jörðina og fundið ljósleiðara. Stjórnvöld þar í landi segja og Evrópusambandið líka að þetta sýni að þjóðir meginlandsins hafi fundið upp stafrænar símstöðvar fyrir 1000 árum
Í gær bárust þær fréttir frá íslandi að fornleifafræðingar hefðu grafið 1.000 m ofan í jörðina og fundið ekkert . Íslensk stjórnvöld fagna þessu mjög og segja hafið yfir allan vafa að það hafi verið íslenskir landnámsmenn sem fundu upp þráðlaust kerfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.4.2007 | 16:23
Flestir telja afkomu sína betri nú en fyrir fjórum árum...
Það eru merkilegar niðurstöður könnunar Capacent sem kynntar voru sl. föstudag. Þar var spurt hvort fólk teldi afkomu sína betri núna en fyrir fjórum árum. Alls sögðu um 60% að afkoman hefði batnað undanfarin fjögur ár og aðeins 10% segja að afkoma sín hafi versnað á þessu tímabili.
Þetta skiptir máli í kosningunum og sýnir að almenningur finnur fyrir þeirri kaupmáttaraukningu sem átt hefur sér stað á liðnum árum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 16:43
Útgjöld til menntamála hér þau hæstu ef borin eru saman ríki OECD
Sl. föstudag hélt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, því fram að framlög til menntamála væru lægri hér á landi en hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Þessi fullyrðing er röng.
Samkvæmt nýjustu tölum frá OECD ver engin þjóð, að Norðurlöndunum meðtöldum, hlutfallslega hærri framlögum til menntamála en Ísland. Framlög okkar til málaflokksins hafa stórhækkað og má í því samhengi nefna að nemendum á háskólastigi hefur fjölgað úr um 7.500 árið 1995 í um 17.000 núna. Fjöldi nema í framhalds- og doktorsnámi hefur einnig margfaldast. Í nýlegum tölum frá OECD-ríkjunum kemur í ljós að hlutfall þeirra sem vinna við vísindastörf er hæst á Íslandi.
Á örfáum árum hafa Íslendingar farið fram úr Norðmönnum og Dönum og náð Svíum þegar kemur að fjölda ungmenna sem stunda háskólanám. Í nýjasta hefti Norrænna hagtalna kemur fram að árið 2000 hafi 10,5% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára stundað háskólanám. Árið 2004, einungis fjórum árum síðar, var þetta hlutfall komið í 15%. Þátttaka Íslendinga í háskólamenntun hefur þannig á örfáum árum farið úr því að vera sú minnsta á Norðurlöndum í að vera sú mesta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.4.2007 | 10:08
Allir að skoða....
Kind.is
Glæsilegur vefur ungra framsóknarmanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2007 | 14:34
Auglýsingakostnaður stjórnmálaflokkana..
Morgunblaðið birti um helgina upplýsingar sem Capacent Gallup hefur aflað um birtingarkostnað stjórnmálaflokkanna. Þar kemur fram að Framsóknarflokkurinn hafu eytt rúmum þremur milljónum króna í birtingar á auglýsingum á þessu tímabili sem nær frá 27. mars til 18. apríl, eða ríflega hálfri milljón umfram Samfylkingu og Vinstri græna.
Rétt er í þessu samhengi að vekja athygli á því að fyrsta auglýsing Framsóknarflokksins vegna komandi alþingiskosninga birtist ekki fyrr en 4. apríl sl. Hins vegar höfðu hinir stjórnmálaflokkarnir hafið birtingar auglýsinga löngu fyrr þótt enginn væri jafn snemma í því og Samfylkingin sem birti sína fyrstu heilsíðuauglýsingu 10. febrúar sl. eða rúmum þremur mánuðum fyrir kosningar. Vinstri grænir hófu svo sína baráttu ekki löngu síðar og hafa báðir flokkar auglýst grimmt í dagblöðum frá þeim tíma.
Kostnaður vegna auglýsinga sem birtust fyrir 27. mars er ekki inni í yfirliti Capacent Gallup enda náðist ekki samkomulag um það á milli stjórnmálaflokkanna að takmarkanir giltu frá og með áramótum, eða frá og með þeim tíma sem ný lög um fjármál stjórnmálaflokkanna tóku gildi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Börnin
- Benjamín
- Ástrós Anna
- Sigrún María og Birna Clara
- Tómas Ingi
- Hafþór Ernir og Kristbjörg Freyja
- Rikki "Potter"
- Adam Ingi
Ég les
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 962
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- fufalfred
- annakr
- adalheidur
- birgirel
- birkir
- bjarnihardar
- bet
- bingi
- bleikaeldingin
- davidwunderbass
- esv
- elinarnar
- eyglohardar
- eysteinnjonsson
- fannygudbjorg
- framsokn
- gvald
- gesturgudjonsson
- gullistef
- gudmbjo
- hallurmagg
- helgasigrun
- heringi
- hlini
- jonasy
- joninab
- can-am
- kristbjorg
- hux
- framsoknarbladid
- suf
- sigmarg
- stefanbogi
- steinunnosk
- strandir
- sveinbjorne
- sveinnhj
- toshiki
- valdisig
- vefritid
- amotisol
- arniarna
- aloevera
- gattin
- drum
- sigingi
- grjonaldo
- linafina
- thorolfursfinnsson