24.1.2009 | 07:10
Hvað er fátækt???
Dag nokkurn tók mjög efnaður maður son sinn með sér í ferð út á land í þeim tilgangi að sýna honum hvernig fátækt fólk býr. Þeir dvöldu í tvo daga og tvær nætur á sveitabýli sem myndi teljast fátæklegt.
Á heimleiðinni spurði faðirinn son sinn hvernig honum hafi þótt ferðin. ,,Hún var frábær, pabbi," sagði drengurinn glaður í bragði.
,,Sástu hvernig fátækt fólk býr?" spurði faðirinn.
,,Ó já," sagði sonurinn. ,,Það fór ekki á milli mála."
,,Jæja, segðu mér þá; hvað lærðir þú af þessari ferð?" spurði faðirinn.
,,Ég sá að við eigum bara einn hund en þau eiga fjóra," sagði sonurinn. ,,Við eigum sundlaug sem nær út í miðjan garð en þau eiga læk sem engan enda tekur. Við erum með innflutt ljósker í garðinum en þau hafa milljón stjörnur sem lýsa þeim veginn á næturnar. Veröndin okkar nær alveg að framgarðinum en þau hafa allan sjóndeildarhringinn. Við eigum smá blett til að búa á en þau eiga akra sem ná eins langt og augað eygir. Við höfum þjónustufólk sem þjónar okkur en þau þjóna öðrum. Við þurfum að kaupa okkar mat en þau rækta sinn. Við erum með háa girðingu til að verja okkur en þau eru umkringd vinum sem verja þau."
Faðir drengsins var orðlaus.
Þá bætti sonurinn við: ,,Takk pabbi, fyrir að sýna mér hve fátæk VIÐ erum."
Við getum ÖLL lært af þessari sögu, peningar eru ekki allt, að hafa hvort annað er miklu mikilvægara. Hættum þessu krepputali og förum að hugsa jákvætt og BROSA
Tenglar
Börnin
- Benjamín
- Ástrós Anna
- Sigrún María og Birna Clara
- Tómas Ingi
- Hafþór Ernir og Kristbjörg Freyja
- Rikki "Potter"
- Adam Ingi
Ég les
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- vestfirdingurinn
- fufalfred
- annakr
- adalheidur
- birgirel
- birkir
- bjarnihardar
- bet
- bingi
- bleikaeldingin
- davidwunderbass
- esv
- elinarnar
- eyglohardar
- eysteinnjonsson
- fannygudbjorg
- framsokn
- gvald
- gesturgudjonsson
- gullistef
- gudmbjo
- hallurmagg
- helgasigrun
- heringi
- hlini
- jonasy
- joninab
- can-am
- kristbjorg
- hux
- framsoknarbladid
- suf
- sigmarg
- stefanbogi
- steinunnosk
- strandir
- sveinbjorne
- sveinnhj
- toshiki
- valdisig
- vefritid
- amotisol
- arniarna
- aloevera
- gattin
- drum
- sigingi
- grjonaldo
- linafina
- thorolfursfinnsson
Af mbl.is
Innlent
- Bjóða börnum og ungmennum frítt í sund
- Ég hef verið kjaftaskur mikill
- Sjö með þriðja vinning í EuroJackpot
- Eldur kom upp í ruslagámi í Skeifunni
- Upphaf Covid19 líklega tengt leðurblöku
- Þetta er ógnvænleg staða
- Dagur kveður borgarstjórn
- Uggvænlegur undirtónn
- Vörubíll valt á hliðina
- Íbúar komnir heim á ný
- 155 milljónum úthlutað
- Breytingar órjúfanlegur hluti af vegferðinni
- Bendir hveitifyrirtæki á kærumöguleika
- Þarf að útrýma heimilisleysi
- Auknar líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi
Athugasemdir
Góður pistill :)
Kristbjörg Þórisdóttir, 24.1.2009 kl. 10:29
Heyrði þetta upplesið á Sögu um daginn en þetta er flott.
Kjartan Guðmundur Júlíusson., 29.1.2009 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.