Stelpurnar okkar

Tekiđ af vef KSÍ

Ásta frćnka mín átti stóran ţátt í öđru marki Íslands.  Hún er sko öll ađ sunnan stelpan Tounge 

Glćsilegur sigur á Finnum

Íslenska liđiđ hafnađi í 7. sćti á Algarve Cup

12.3.2008

Kvennalandsliđiđ íslenska sigrađi í dag stöllur sínar frá Finnlandi en leikurinn var um 7. sćtiđ á Algarve Cup.  Lokatölur urđu 3-0 Íslandi í vil eftir ađ liđiđ hafđi leitt međ tveimur mörkum í hálfleik.  Katrín Jónsdóttir setti landsleikjamet ţegar hún lék sinn 70. landsleik í dag.

Ţađ var Margrét Lára Viđarsdóttir sem kom íslenska liđinu yfir međ góđu langskoti á 12. mínútu og Rakel Hönnudóttir bćtti viđ öđru marki á 41. mínútu.  Ţetta er fyrsta markiđ hjá Rakel í A landsleik kvenna.  Á síđustu mínútu leiksins bćtti svo Guđrún Sóley Gunnarsdóttir viđ ţriđja marki Íslands og öruggur sigur stađreynd og ţar međ 7. sćtiđ á mótinu.

Á Algarve Cup taka ţátt mörg sterkustu landsliđ heimsins í kvennaknattspyrnu.  Mótiđ er styrkleikaskipt ţannig ađ átta sterkustu ţjóđirnar leika saman í A og B riđli.  Ţjóđirnar í ţessum riđlum eiga ađeins möguleika á ţví ađ sigra mótiđ.  Liđin í C riđli geta hinsvegar ekki endađ hćrra í í 7. sćti sem og íslensku stelpurnar gerđu međ glćsibrag.

Hér ađ neđan má sjá textalýsingu sem birtist á heimasíđunni á međan leik stóđ.

Ísland - Finnland

Leikurinn byrjar međ miklu fjöri og eiga bćđi liđ góđ fćri í fyrstu mínútum leiksins.  Guđbjörg ver vel ţegar finnskur sóknarmađur er komin ein innfyrir.

1-0  Margrét Lára Viđarsdóttir hefur komiđ Íslandi yfir međ fallegu marki međ langskoti.  Íslenska liđiđ hefur sótt meira en finnska liđiđ ógnar líka.  Magrét Lára hefur ţví skorađ í 8 landsleikjum í röđ og 19 mörk í síđustu 15 landsleikjum.  Hún hefur gert 35 mörk í 39 A landsleikjum.

Fjöriđ heldur áfram og eru liđin hvött áfram af 400 skólabörnum sem setja skemmtilegan svip á leikinn.

Guđbjörg markvörđur varđi tvisvar sinnum vel eftir markiđ fyrst á 14. mínútu og svo á 19. mínútu.  Stuttu síđar átti Katrín Jónsdóttir skalla rétt yfir og fimm mínútum síđar átti hún skot naumlega framhjá.  Margrét Lára komst svo í gott fćri á 27. mínútu en hitti boltann illa og markvörđur Finna varđi boltann.

2-0  Rakel Hönnudóttir skorar sitt fyrsta A landsliđsmark.  Ásta Árnadóttir tekur langt innkast međ ţví ađ taka kraftstökk.  Boltinn berst til Rakelar sem kemur boltanum af harđfylgi í markiđ.  Markiđ kemur á 41. mínútu.  Ţetta er fyrsta A landsliđsmarkiđ hjá Rakel og kemur ţađ í hennar ţriđja landsleik.

Leikurinn hefur veriđ í nokkru jafnvćg en íslenska liđiđ hefur veriđ hćttulegra.  Bakverđir liđsins hafa veriđ duglegir ađ taka ţátt í sóknarleiknum og sérstaklega hefur Ólína G. Viđarsdóttir veriđ öflug upp vinstri kantinn.

Dómari leiksins, sem kemur frá Suđur Kóreu, hefur flautađ til leikhlés.  Góđur fyrri hálfleikur hjá íslenska liđinu og tveggja marka forysta stađreynd.

Fyrsta fćri síđari hálfleiksins fellur í hlut Íslendinga ţegar ađ Margrét Lára kemst í gegn á 51. mínútu en skot hennar fer naumlega framhjá.  Finnar hafa bćtt í sóknarleikinn og hafa sótt mikiđ síđustu mínútur.  Vörn Íslands međ Guđbjörgu í markinu, hefur hinsvegar átt svar viđ öllum tilraunum Finna.

Finnar halda áfram ađ sćkja en skapa sér ekki mörg opin fćri.  Helst ađ marki Íslands sé ógnađ međ langskotum en Guđbjörg hefur variđ vel.  Margrét Lára átti ágćtis tćkifćri á 60. mínútu en skot hennar fór beint á markvörđ Finna.  Stuttu síđar átti hún skot ađ marki sem markvörđurinn varđi og var Katrín Ómarsdóttir hársbreidd frá ţví ađ ná boltanum sem markvörđurinn missti frá sér.

Íslenska liđiđ fékk svo aukaspyrnu á vítateigslínu á 63. mínútu en skot Margétar Láru hafnađi í varnarveggnum.  Guđbjörg ver svo tvo langskot vel međ fimm mínútna millibili en á 80. mínútu fá Finnar sín bestu fćri í síđari hálfleik og ver ţá Guđbjörg tvisvar sinnum međ stuttu millibili frá Finnum eftir ţvögu í teignum.

Finnska liđiđ hefur veriđ mun meira međ boltann en íslenska liđiđ hefur varist skynsamlega og veriđ ógnandi í skyndisóknum.

3-0  Guđrún Sóley Gunnarsdóttir skorar ţriđja mark Íslands í uppbótartíma.  Markiđ kemur eftir hornspyrnu og tekst finnska liđinu ekki ađ hreinsa frá marki og Guđrún Sóley skorar međ skoti af stuttu fćri.

Flautađ hefur veriđ til leiksloka og hafa íslensku stelpurnar sigrađ sinn fjórđa leik í röđ á mótinu.  Markatalan er glćsileg, 12-1 og sjöunda sćti mótsins stađreynd.  Mótiđ er styrkleikaskipt ţannig ađ íslenska liđiđ hafnađi eins ofarlega og mögulegt var.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Agnes Ásta
Agnes Ásta
er Garðbúi, Framsóknarmaður og United aðdáandi
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1315

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband